vér mótmælum flestir
það virðist vera öryggisventill í okkur flestum sem hrekkur í gang þegar eitthvað gerist sem er svo óréttlátt að það sýður á okkur. svona til dæmis þegar upp komst um tiltölulega augljóst svindl olíufélaganna á okkur davíðunum á íslandi...svo stuttu seinna er tilkynnt um hækkun bensínverðs, olíufélögin neita að borga sektir og á endanum eru afleiðingarnar fyrir golíat engar, steinninn hitti en golíat lifir. öllum blöskrar, allir ætla nú að láta heyra í sér en svo skrúfast frá ventlinum og beinir athygli okkar að law & order sem var að byrja og við róumst niður, við getum mótmælt á morgun.
rúv er annað dæmi. ömurlegra apparat er ekki að finna á föstu landi að mínum dómi.
sérstaklega svíður mér núna þegar rúv er að sýna með stolti sögu sjónvarpsins í þáttum sem heita sjónvarpið 40 ára. þar ber að líta, meðal annars, gömul áramótaskaup og annað skemmtiefni. það sem gerir mig sérstaklega reiðan er að þarna er á ferð nákvæmlega sama fjandans pakkið og er að sjá um allt skemmtiefni sjónvarpsins í dag, nákvæmlega sama liðið meira og minna er búið að sjá um áramótaskaupið síðustu 40 ár og spaugstofudrengirnir eru þarna líka.
afhverju fer það í taugarnar á mér? jú, ríkissjónvarp á að stuðla að nýbreytni, ríkissjónvarpið á að vera vettvangur þar sem ungt fólk getur prófað nýja hluti, komið með eitthvað ferskt í samfélagið. ríkissjónvarp á ekki að finna "elítu" leikhússhúmors á íslandi og láta okkur horfa á þau eldast og deyja. þar af leiðandi er íslensk dagskrágerð á svo lágu plani að upptökur bin ladens í bakgörðum múslimistans taka okkur í nefið. hæst ber að nefna pípóla.
best fannst mér þó um árið þegar sjónvarpið fékk meistara davíð attenborough til að fara með nokkra áróðursmola fyrir hugmyndina um ríkissjónvarp.
munurinn er sá að bbc er að gera þetta rétt...ef bbc hefði ekki leyft ungum peyjum að reyta af sér brandara sem þáverandi kynslóð fussaði og sveiaði yfir þá hefðum við ekkert monty python í dag.
svo hækkar rúv afnotagjöld og það sýður á mér en svo byrjar law & order og allt er gott.
allt er þó ekki glatað. bara núna um daginn voru að berast fréttir yfir sjóinn að litli maðurinn hafði unnið glæstan sigur á general mills. matvælarisinn hafði dirfst að breyta bragðinu á kókó puffs og það líkaði davíð ekki. nóg er að segja frá því að við erum að fá gamla kókó pöffsið aftur. spurning hvort law & order hafi verið á dagskrá þegar tilkynningin kom.

3 Comments:
þetta er allt saman satt og rétt hjá þér...og manni blöskrar svo rosalega með þetta rúv dæmi allt saman að manni langar bara til að....nei sko, law & order er að byrja...hvað var ég að segja?...
Þú hefur greinilega ekki verið að fylgjast með fréttum nýlega. Áramótaskaupið í ár verður í höndum Reynis Lyngdal, leikstjóra, og í handritshöfunda teyminu er meðal annars Þorsteinn Guðmundsson.
Ef þú veist ekki hver Reynir er þá er hann einn aðal auglýsingarleikstjórinn í dag.
þú hefur ekki verið að fylgjast með, breytingar í dag, 40 árum seinna sanna eiginlega mál mitt.
og það skal enginn segja mér að einhverjir af þessari "elítu" verði ekki í skaupinu í ár
Skrifa ummæli
<< Home