ShiskeBobs ShiskeBlogg

3.10.06

óbarinn biskup

í hinum ýmsu menningarkimum heimsins eru til margar leiðir til að skilja drengi frá mönnum, líka geta ýmsir atburðir og aðstæður gert slíkt hið sama. yfirleitt eiga þessar leiðir eða atburðir það sameiginlegt að eiga fínan séns á að valda óbætanlegu tjóni á þeim sem í þeim lenda, og líka, að þegar þeim er lokið er drengurinn orðinn að manni.
að innbyrða ofskynjunarlyf og loka sig í nokkra daga í kofa gerðum úr kúadellu með eldri mönnum þorpsins gerir það sama hjá einum þjóðflokki og að taka stökkið fram af klettabrún bundinn við trágrein...matrix style. á sama hátt hafa hetjudáðir undir lífshættulegum skilyrðum, sem dæmi stríð, skilið drengi frá mönnum í gegnum mannkynssöguna.
nýlega heyrðist af frumlegri aðferð úr útnára hins siðmenntaða heims, þar sem pílu var kastað í bakið á ungum manni.
um leið og pílan er lent, samstundis eftir að gömlu kallarnir koma úr kofanum eftir leynilegt næturbrölt með unga drengnum, þegar greinin strekkist og það rykkist í fótinn á þeim sem stekkur er viðkomandi búinn að yfirgefa hvergiland barries og genginn á vit nýs lífs.
en síðustu kynslóðir af drengjum hérna í vestur evrópu standa frammi fyrir því að hér hefur ekki verið nein leið til að koma okkur úr hvergilandi, engin manndómspróf, engin stríð, engin hetjudáð til að drýgja...ekkert. enda höfum við komið okkur upp heilli kynslóð af strákum sem eiga engann séns á að verða menn því þeir eru vissir um að tribal tattú, sportbílar í skærum litum og strípur er leiðin út. það næsta sem drengir hérna hafa komist því að yfirgefa pleisið er að verða sjómenn, þar er nefnilega fínn séns á að missa eitt stykki útlim...
en þetta er ekki slæmt fyrir alla. ég til dæmis myndi hvort sem er aldrei þora að fá pílu í bakið eða glíma við villta gaupu, eða hvað sem er í rauninni, og þarf því ekki að lifa með því að vera þorpinu og fjölskyldu minni til skammar.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er ekki spurning um að þora að fá pílu í bakið. Maður fær hana bara allt í einu í sig. Sennilega skárra en að þurfa að glíma við gaupu.

11:15 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home