ShiskeBobs ShiskeBlogg

7.10.06

alveg ofboðslega frægur...

já jói, ég stal titlinum þínum, deal with it
að vera frægur opnar fyrir þér ýmsar dyr.
ekki bara að verða hrikalega ríkur og vaða í kerlingum...nú eða körlum ef það er það sem þú vilt, heldur líka að geta meira og minna hagað þér eins og þú vilt.
ákveðin hegðun er bara ásættanleg í þjóðfélaginu ef þú ert frægur, annars má fastlega gera ráð fyrir því að fólki líki fljótt illa við þig og vinahópurinn fari að minnka.
sem dæmi má nefna að til er saga af frægum rokkurum í pissukeppni sem endar á að annar sleikir piss hins uppúr gólfi. eftir að hafa heyrt söguna hugsaði ég með mér að þarna væru alvöru djöfulsins rokkara á ferð. það er óþarfi að taka það eitthvað frekar fram að ef sagan væri um...tja, segjum jóhann skagfjörð, gamlan skólafélaga minn, þá er örugglega það síðasta sem ég hafði hugsað á svipuðum nótum og í fyrri sögu, heldur eitthvað nær því að reynast sannspár um að engin kona myndi kyssa þann munn aftur.
hefst nú smá saga um óásættanlega hegðun venjulegs manns sem kannski hefði sloppið sem sérvitrun hefði manneskjan verið fræg.
eitt sinn, þegar ég var ungur og ennþá í grunnskóla kem ég, eins og alla aðra daga, inní mötuneyti skólans sem ég var í. geng að borði þar sem nokkrir félagar mínir sátu að snæðingi og hefst við að spjalla við þá, sest samt ekki, heldur stend við borðið. í miðri setningu er eitthvað sem truflar, eitthvað ekki alveg rétt, eftir smá stund átta ég mig á því að eitthvað greip augað...
ég spyr félagann sem augað hafði spottað...félagi sem hafði ekki tekið þátt í umræðunni heldur einbeitt sér að matnum sínum...
-hvað...hvað er þetta bakvið eyrað á þér?
hann lítur upp sallarólegur og spyr á móti: ha?
ég spyr aftur: þarna, bakvið eyrað á þér...eitthvað hvítt?
-jaaaá, þetta er tyggjóið mitt, mér finnst gott að geyma það þarna.

2 Comments:

Blogger Kiddi said...

Ég á það til að geyma hluti í nösunum.

1:30 e.h.  
Blogger Kiddi said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

1:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home