lífstíll
ég geri ekki miklar kröfur til fólks í kringum mig og eiginlega má segja að mér er nákvæmlega sama hvað fólk kýs að gera svo lengi sem það er ekki að kosta mig eitthvað, nú, eða valda mér óþægindum. því reyni ég að passa mig á að það sem ég geri valdi öðru fólki ekki ama eða kostnaði, því annars væri ég hræsnari.
því fer í taugarnar á mér að heill hópur af fólki er að kosta mig hrikalega mikið, jafnvel í hverjum mánuði, bara með því hvernig það kýs að lifa sínu lífi og er svo einstaklega eigingjarnt að því er alveg sama um okkur hin, þau eiga rétt á að lifa eins og þau vilja. köllum þetta fólk "fólkið út á landi", nú, eða "bændur"
og það er bara hárrétt hjá þeim, auðvitað mega þau lifa eins og þau vilja og gera það sem þau vilja...alveg uppað þeim punkti að sá lífstíll er að kosta þjóðfélagið peninga.
afhverju í ósköpunum eigum við að halda uppi atvinnugreinum sem eru ekki færar um að standa undir sér sjálfar...sjálfum er mér nákvæmlega sama hvort það séu til íslenskar gúrkur, ég veit ekki betur en að sú grænmetistegund sé ekki til hérna hvort sem er. en bara til þess að það sé til eitthvað sem hægt er að kalla íslenska gúrku þarf! ég að borga miklu hærra fyrir hana en ef hún væri ekki til, þarf! ég hef ekki einu sinni val um ódýrari vöruna. ef að grænmetisræktendur geta ekki verið samkeppnisfærir á jöfnum markaðsgrundvelli eiga þeir að sjá sóma sinn í því að leggja niður störf og finna sér eitthvað annað að gera.
þetta væri svona svipað ef að allir svíar þyrftu að borga 5% hærra vörugjald af öllum vörum til þess eins að lækka vöruverð á íslandi...ég efast um að það yrði vel liðið. að sama skapi myndi ég alveg vilja sjá hér á íslandi svipað verð á matvöru og svipaða lánskosti og í hinum norðurlöndunum en til þess að ég geti fengið það þarf ég einfaldlega að flytja þangað sem það er í boði! ekki sitja í kofanum heima á íslandi og heimta hluti hingað "afþvíbara hérna á ég heima" eins og smábarn, þangað til að ég er tilbúinn að færa þá fórn sem þarf til að eiga möguleika á þeim kostum get ég bara haldið kjafti og hætt að væla.
ef að landbyggðin er ekki fær um að standa undir sér sjálf á frekar að finna fólkinu sem býr þar aðra staði að búa á og aðrar vinnur að vinna við. ég tek ekki gild þau rök að fólk vilji búa þarna því það hefur búið þarna hingað til, það eru ekki rök.
fólk getur sagt þar til það verður blátt í framan að ég viti ekkert hvað ég er að tala um, þetta er nú einu sinni heimili fólks og alls ekki auðvelt að hreinlega yfirgefa það. nei, kannski ekki, en ég veit hinsvegar að það væri bara erfitt fyrir kynslóðina sem flytti því allir vita að krökkum er fljótlega drullusama hvar þau eru og æskustöðvar eru alltaf bestu staðir í heimi alveg sama hvar þeir eru.

2 Comments:
01001000 01100101 01111001 01110010 00100000 01001000 01100101 01111001 01110010 00100001
takk fyrir stuðninginn binary boy
Skrifa ummæli
<< Home