vondur dagur
mikill góðvinur minn átti einstaklega vondan dag um daginn sem ég má til með að deila með ykkur því vondur dagur fyrir einn er fyndin saga fyrir aðra.
málið er að félaginn hefur átt við veikindi að stríða í maga og hefur upp á síðkastið verið í hinum ýmsu prófum á spítala til að reyna að komast að því hvað væri nú að angra kappann.
þennan umrædda dag hafði hann einmitt byrjað daginn á því að fara á spítalann þar sem starfsfólkið hafði þrætt slöngu í gegnum nefið á honum og ofaní magann..til hvers hef ég ekki glóru. þessi slanga var svo límd föst við andlitið á honum og átti hann að vera með hana í heilan dag.
eftir að hafa komist yfir mestu óþægindinn ákveða hann og kærastan hans að skella sér út í smá gönguferð. þegar hann er að rölta með kærustunni í gegnum garð nálægt heimili sínu byrjar hann að finna fyrir óþægindum í maganum vegna snúrunnar sem verða á endanum svo slæm að hann byrjar að æla. hann ælir svo alveg þangað til að hann ælir slöngunni uppúr maganum á sér og er nú með slöngu sem stendur út um nefið og munninn. það tekur félagann smá tíma að átta sig á því að hann hafði skilað slöngunni út um munninn og hefst nú við að draga hana í gegnum nefið á sér þangað til að allt í einu að slangan stoppar og kemst ekki meir. þá stekkur kærastan til og bendir á að endinn sem kemur út um nefið er ennþá límdur við andlitið á honum. hann rífur límið burt og hefst aftur við að draga slönguna út um munninn en allt í einu stoppar slangan aftur. nú er það tappi sem er á endanum á slöngunni sem hindrar að hún skili sér að fullu út. kærastan tekur sig þá til, tekur í slönguna og bítur tappann af slöngunni. loks er slangan úti.
það er þá sem félaginn tekur eftir að allt þetta hafði átt sér stað fyrir framan tvo eldri menn sem voru að spila boccia í garðinum og standa og horfa á hann gáttaðir, allan út í ælu búinn að vera að brasa við að draga slöngu út um munni í gegnum nefið.
það má taka það fram að félaginn er danskur og ætti það að auka skemmtanagildi sögunnar um heil 30%.

2 Comments:
Þessi saga er náttúrulega bara snilld.
Þetta kom líka fyrir vin minn en hann er Norðmaður og því er það vart í frásögur færandi.
Þín saga er hins vegar góð og sýnir að bölvuðum Baununum hefnist fyrir maðkað mjölið.
Skrifa ummæli
<< Home