ShiskeBobs ShiskeBlogg

30.1.07

undraheimur stærðfræðinnar

stærðfræði þarf ekki alltaf að vera leiðinleg...
ég geri mér grein fyrir að flestir hafa ekki mikinn áhuga á að lesa skemmtilega hluti um stærðfræði en það eru nokkur atriði sem ég hef rekist á sem mér finnst nógu fyndin eða skrýtin til að deila þeim með fólki.

til dæmis rakst ég á grein þar sem verið var að útskýra hvernig væri hægt að reikna furðulega nákvæmt gildi á pí með því að henda pulsum...djóklaust. þetta er alvöru tilraun sem gengur út á það að ef þú velur þér pulsur sem eru t.d. 15cm langar, notar límband til að setja strik með 15cm millibili og hendir svo pulsunum inná svæðið þá verður tvisvar sinnum fjöldinn sem þú kastaðir deilt í fjöldann sem lenti á striki furðulega nálægt pí...reyndar, ef nógu mörgum pulsum er hent, verða skekkjumörkin ekki nema u.þ.b. 0.07...

annað sem ég rakst á var heilaverkjandi grein um það að 0.999... = 1
"..." þýðir endalaust.
þetta er fengið með þeirri staðhæfingu að 1/3 = 0.333...
og ef að þú margfaldar báðar hliðar með 3 þá færðu 3*1/3 = 3*0.333...eða 1 = 0.999...
þetta er einnig hægt að sanna með algebru fyrir þá sem hafa áhuga

annað magnað sem ég hef lært um tölur er að ef þú velur þér tölu, hérumbil hvaða tölu sem er, og leggur við hana sömu tölu bara afturábak, og tekur svo útkomuna af því, snýrð henni við og leggur við útkomuna þína, þá á endanum færðu tölu sem þú getur lesið afturábak og áfram...dæmi: 427+724 = 1151+1511 = 2662

bara svo að ég taki það fram þá er ekki verið að kenna okkur að henda pulsum, eða að búa til flottar tölur með samlagningu hérna í hr...við eigum að vera að læra eitthvað, en ég var ekki að fylgjast með

27.1.07

samviskusemi eða heimska...allaveganna annaðhvort

ég lenti í því um daginn að ég fór með vinkonu minni á kaffihús, sem væri alls ekki til frásagnar eitt og sér, heldur pöntuðum við okkur kók...
en það er samt ekki sagan. málið er að ég var býsna útkeyrður eftir daginn og kannski ekki alveg með fullu viti, en það var þannig að þegar við gerðum okkur tilbúin til að fara þá gengum við bara út...án þess að borga.
daginn eftir setti ég mig í samband við hana og spurði hreint út hvort hún hefði borgað reikninginn...hún neitaði því...ég mundi ekkert sérstaklega eftir því að hafa ekki borgað hann en mundi hinsvegar ekki eftir að hafa borgað hann.
svipurinn sem ég fékk þegar ég gekk inná staðinn og tilkynnti að ég hefði verið þarna kvöldið áður og líklegast gengið frá reikningi óviljandi var þurr.
afgreiðslustúlkan sagði hálf fruntalega að hún myndi ekkert eftir því hvort ég hefði greitt hann eða ekki, ég sagðist nokkuð viss um að svo væri ekki og heimtaði að fá að greiða hann núna.
það var greinilegt að hún gerði ekki ráð fyrir að ég myndi segja þetta, hún varð það hissa, var greinilega töluvert vanari tuði frá fólki.
hún sagði ekkert þegar hún tók kortið, hún bara horfði á mig...en þurrleikinn var farinn úr svipnum. hún sagði heldur ekkert í fyrstu þegar hún var að strauja kortið en svo kom: það eru þá 560kr.
560kr! hugsaði ég, fyrir tvær kók!? fjandans rán!
svo þegar færslan var samþykkt sagði hún: voðalega ert þú samviskusamur.
hún sagði það svona eins og hún hálfpartinn bjóst við að færslunni yrði synjað og á sama tíma myndi ég hlaupa út öskrandi: hahaha hélstu í alvörunni að ég ætlaði að borga þetta auli!
ég þakkaði henni fyrir að finnast það og sagði að líklegast væri uppeldinu að kenna.

og ég vil einmitt kenna mömmu um þetta, hún er líka svona ömurlega samviskusöm. keyrði eitt sinn í bónus til að skila 500kr sem hún hafði fengið vitlaust til baka...500kr!...bónus! eins og í baugsveldið!
þvílíkur kjáni ha?

21.1.07

enn um mann ársins

það eru ákveðnir hlutir sem aðeins eru framkvæmdir í kringum áramót.
til dæmis að líta yfir hið liðna og spá í því næsta.
í gamla daga voru völvur málið. á hverju ári um hver áramót kepptust tímarit og dagblöð við að spá í árið sem var að hefjast, reyndar er það gert enn þann dag í dag í flestum tímaritum en virðist hafa misst kúlið á síðustu árum.
í dag virðist tískan vera að velja menn ársins. ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið þegar fréttir af mönnum og konum ársins tóku að streyma inn frá fjölmiðlunum.
í öllum landshornum voru afreksfólk sem hefði gert eitthvað til að eiga titilinn skilið og enginn skortur virtist vera á.
ég hinsvegar er með betri hugmynd.
ég vill velja menn ársins í byrjun viðkomandi árs og þannig setja pressu á þá útvöldu til að lifa upp í titilinn, þannig komum við í veg fyrir að hrein heppni eða tilviljanir ráði úrslitum.
ég er viss um að ef að fólk væri virkilega að reyna að vera menn eða konur ársins þá væru viðkomandi töluvert betri en ef að það er bara að lulla yfir árið og að lokum veldi fólk þá ómeðvituðu frammistöðu fram yfir einhverja aðra...

svo í lok árs færum við öll saman yfir frammistöðuna og gæfum viðkomandi einkunn...og auðvitað myndi völva spá fyrir um þann sem við veldum fyrir komandi ár.

16.1.07

árar móta heit

er það ekki klassískt að hefja nýtt ár á því að tala um það hvernig maður ætlar sér að verða betri manneskja en á því liðna?
ekki ég.
ég hugsaði nefnilega mikið og vel um það hvaða áramótaheit ég ætti að setja mér sem ég myndi svo enda á að standa ekki við fyrir árið sem er byrjað, og kom upp með: ekkert.
skoðum málið saman:
ég reyki ekki, hætti þeim ósið fyrir löngu. ég drekk reyndar, en tel mig gera það í hófi, og ekki nóg með það, heldur bara listavel. ég hefði getað tekið upp á því að hefja reykingar aftur, af tveimur ástæðum:
nr.1: ég tók mig helvíti vel út með rettu í hönd, og missti óneytanlega töluvert af kúli við að hætta.
nr.2: það myndi gefa mér færi á að hætta á næsta ári og þannig slá tvær flugur í...ja...tveimur höggum reyndar.

að vera betri við börn og munaðarleysingja komst á blað á tímabili en ég tel mig ekki vera neitt sérstaklega vondur við þann samfélagshóp og taldi ekki ástæðu til að auka framlög neitt sérstaklega...pældi í því að vera aðeins vondur við þau í ár til að geta sett mér það markmið að vera betri við þau á því næsta en taldi það hreinlega of mikla vinnu að fara að leita uppi börn og munaðarleysingja þar sem ég kannast nú ekki við að verða mikið á vegi þeirra í mínu daglegu lífi.

að horfa minna á klám til að styðja feminista og baráttu þeirra kom sterklega til greina en lenti í erfiðleikum með að skilgreina, eða koma mér saman um hvað væri hæfilega "minna", á endanum var tillagan felld. ég sættist þó á það á endanum að bara horfa, ekki hlusta á klám, því verður allt það klám sem ég horfi á á árinu stillt á mute.

að lokum sætti ég mig við það þó að ég sé langt frá því að vera al-góður er ég nógu góður til að jafna það út við það slæma. allar tilraunir til að fjölga kostum munu einungis geta af sér jafna tölu galla. ég virðist vera í fínum ballans og ætla ekki að fara raska hinu náttúrulega jafnvægi...