ShiskeBobs ShiskeBlogg

24.9.06

vér mótmælum flestir

það virðist vera öryggisventill í okkur flestum sem hrekkur í gang þegar eitthvað gerist sem er svo óréttlátt að það sýður á okkur. svona til dæmis þegar upp komst um tiltölulega augljóst svindl olíufélaganna á okkur davíðunum á íslandi...svo stuttu seinna er tilkynnt um hækkun bensínverðs, olíufélögin neita að borga sektir og á endanum eru afleiðingarnar fyrir golíat engar, steinninn hitti en golíat lifir. öllum blöskrar, allir ætla nú að láta heyra í sér en svo skrúfast frá ventlinum og beinir athygli okkar að law & order sem var að byrja og við róumst niður, við getum mótmælt á morgun.
rúv er annað dæmi. ömurlegra apparat er ekki að finna á föstu landi að mínum dómi.
sérstaklega svíður mér núna þegar rúv er að sýna með stolti sögu sjónvarpsins í þáttum sem heita sjónvarpið 40 ára. þar ber að líta, meðal annars, gömul áramótaskaup og annað skemmtiefni. það sem gerir mig sérstaklega reiðan er að þarna er á ferð nákvæmlega sama fjandans pakkið og er að sjá um allt skemmtiefni sjónvarpsins í dag, nákvæmlega sama liðið meira og minna er búið að sjá um áramótaskaupið síðustu 40 ár og spaugstofudrengirnir eru þarna líka.
afhverju fer það í taugarnar á mér? jú, ríkissjónvarp á að stuðla að nýbreytni, ríkissjónvarpið á að vera vettvangur þar sem ungt fólk getur prófað nýja hluti, komið með eitthvað ferskt í samfélagið. ríkissjónvarp á ekki að finna "elítu" leikhússhúmors á íslandi og láta okkur horfa á þau eldast og deyja. þar af leiðandi er íslensk dagskrágerð á svo lágu plani að upptökur bin ladens í bakgörðum múslimistans taka okkur í nefið. hæst ber að nefna pípóla.
best fannst mér þó um árið þegar sjónvarpið fékk meistara davíð attenborough til að fara með nokkra áróðursmola fyrir hugmyndina um ríkissjónvarp.
munurinn er sá að bbc er að gera þetta rétt...ef bbc hefði ekki leyft ungum peyjum að reyta af sér brandara sem þáverandi kynslóð fussaði og sveiaði yfir þá hefðum við ekkert monty python í dag.
svo hækkar rúv afnotagjöld og það sýður á mér en svo byrjar law & order og allt er gott.
allt er þó ekki glatað. bara núna um daginn voru að berast fréttir yfir sjóinn að litli maðurinn hafði unnið glæstan sigur á general mills. matvælarisinn hafði dirfst að breyta bragðinu á kókó puffs og það líkaði davíð ekki. nóg er að segja frá því að við erum að fá gamla kókó pöffsið aftur. spurning hvort law & order hafi verið á dagskrá þegar tilkynningin kom.

23.9.06

sjálfsportrett

ég hef aldrei verið þessi gæji sem hefur haug af skemmtilegum litlum sögum af fólki til að reyta af sér við hvert tækifæri. mér hefur reyndar aldrei fundist ég vera sérstaklega góður sögumaður ef út í það er farið, ég man til dæmis einstaklega illa nöfn og veit langoftast ekki næg deili á staðsetningum til að gæða söguna lífi...
hinsvegar þá er ég mjög oft efniviðurinn í litlum sögum sem annað fólk hefur að segja. í mínum sögum er það langoftast ég sjálfur sem um ræðir, ég er líka sá sem á að hlæja að á meðan verið er að, og eftir að búið er að, segja söguna.
það vill nefnilega oft verða þannig að þegar ekki þarf að útskýra aðalpersónuna eða staðsetninguna hennar í sögunni er lítið eftir annað en gjörðir aðalpersónunnar til að kynna okkur fyrir því hver hún er. og það vill svo einkennilega til að þannig sögur vilja oft snúast um kjánaskap...það eru sögurnar sem ég kann.
á þeim nótum rámar mig í mjög kaldann vetrarmorgun þar sem ég var við vinnu á byggingarstað. það var komið kaffi og ég var að fara á bílnum mínum til að sækja góðvin minn hann egil trymbil. það þarf að komast til skila að bíllinn minn á þessum tíma var einstaklega ljótur en einstaklega frábær bíll (ég vann meira að segja ljótubílakeppni hjá x-inu með honum), svona tom yorke sjálfrennireiða. það var ekki mikið sem virkaði í þessum bíl, það þurfti að sparka í ljósin til að þau færu í gang, miðstöðin blés annaðhvort engu eða ísköldu lofti og upphalararnir fyrir bílbeltin hættu að virka í valdatíð vigdísar finnbogadóttur.
og það var einmitt til að koma í veg fyrir að bílbeltið héngi undan bílhurðinni sem ég gríp beltið og held því uppi með hægri hendi meðan ég lokaði hurðinni með þeirri vinstri. næsta hugsun var að gangsetja bílinn en svo virtist sem höndin á mér vildi ekki bifast...mér var líka einstaklega kalt á þumli hægri handar.
það var þá sem ég áttaði mig á því að ég hafði skellt hurðinni á þumalinn á mér og lokað hann fyrir utan bílinn, nú fyrst fann ég til, hurðaropnarinn var þannig hannaður að hann hentaði betur til að opna hann með þeirri hægri, en hún var vant við látin þannig að sú vinstri þurfti að duga.
það tók nokkrar sekúndur en það hafðist, þumallinn lifir góðu lífi en við tölumst ekki við enn þann dag í dag.

22.9.06

sölumenn dauðans

það er misskilningur ef menn halda að sölumenn dauðans gangi um í leðurjökkum eða slitnum dúnúlpum og búi hjá mömmum sínum í breiðholtinu. það er líka algengt að fólk haldi að sölumenn dauðans selji eiturlyf, dóp ef þú vilt.
nei, sölumenn dauðans í dag ganga um í jakkafötum og reyna ekki einu sinni að fara huldu höfði. þeir strolla um kringluna í leit að sínum fórnarlömbum, þeir hafa meira að segja látið sjá sig í skólanum mínum upp á síðkastið. "ertu búinn að kynna þér viðbótarlífeyrissparnað kb banka?" kyrja þeir, "hefur þú kynnt þér kb námsmanna þjónustu okkar?" segja þeir með mjúkri röddu...
frábært að hafa fyrirtæki sem vinnur staðfastlega að því markmiði sínu að sjá til þess að hver einasti nemandi á landinu byrji lífið eftir skóla með skuldir á bakinu, spurning hvenær það verður að tilvonandi foreldrar geti stofnað reikning fyrir ófætt barn sitt og þar með gulltryggt því lægri yfirdráttarvexti, svona fósturbók...(ef það kemur í framtíðinni þá muniði hvar þig heyrðuð það fyrst)
þessi ameríski fyrirtækja hugsunarháttur virðist gegnsýra markaðstefnu bankanna, semsagt, það skiptir ekki máli hverjum er verið að selja og hvað, svo lengi sem það er verið að selja. og það eina sem bankarnir eru að selja í dag eru leiðir til að skulda...þegar ég var lítill var reynt að kenna manni að spara, bankarnir vildu fá mann í viðskipti við sig, en það var til að stofna bók og leggja peningana sína inná...í dag vilja þeir selja manni holu fulla af peningum og skipa manni að fylla hana aftur af peningum þegar maður er kominn niður á botn.
hérna áður fyrr þurfti maður að eiga eitthvað til að eiga séns á að fá pening úr bönkunum, í dag er ég nokkuð viss um að lánsviðmiðið er að lántaki geti ekki ljóstillífað...svona til að koma í veg fyrir rugl.
og ef að það er orðið þannig að allir geti tekið lán sem vilja, semsagt leikvöllurinn er orðinn jafn fyrir alla, erum við þá ekki orðnir kommúnistar?
er þá brynjólfur bjarnason sá sem síðast hlær?