auðtrúa
ég skal fyrstur viðurkenna það að ég er ferlega auðtrúa manneskja. af þessum sökum kann ég ferlega illa við að vera blekktur og fyrirlít lygar.
lendi nú ekki oft í því að vera blekktur með illum tilgangi en stundum særir fólk án þess að ætla sér það...ég er reyndar engin undantekning frá því...
þegar ég var um 14 eða 15 vetra djammaði ég gífurlega vel og mikið (það má deila um vel, en ekki um magnið). í skólanum eftir eina djammhelgina þar sem mikið og gott teiti hafði átt sér stað hjá einni bekkjarsystur minni tók ég snemma eftir því að fólk horfði mikið á mig og það var greinilegt að þónokkrir af skólafélögum mínum virtust ekki tala við mig.
þessu kunni ég engan skilning á og setti mig við eitt af borðunum í mötuneytinu þar sem nokkrir skólafélagar sátu. annaðhvort sat skólasystir mín sem hafði haldið partíið við borðið og fór um leið og ég kom eða að ég var fræddur um að hún væri reið út í mig, allaveganna komst ég að því að ég var illa liðinn eftir helgina.
ég spurði hvers vegna í ósköpunum hún væri reið út í mig en fékk engin svör í fyrstu. ég var spurður með miklum vantrúarsvip hvort mér væri alvara, að ég skildi í alvörunni ekki afhverju hún gæti verið reið út í mig. að lokum fékk ég svar...
mér var sagt að ég hefði verið svo ölvaður í partíinu, sem var satt, að ég hefði "létt á mér" í blómapott sem stóð í inngangnum heima hjá henni, og nú voru foreldrar hennar óðir út í hana.
ég þverneitaði en leitaði grimmt í minnisbankanum. slitrótt minnið gaf mér samt engar frambærilegar niðurstöður en þó að ég hefði engar minningar um verknaðinn ætlaði ég mér nú samt að gangast við honum og taka ábyrgð á því sem ég hafði gert.
hófst handa við að grátbiðja um fyrirgefningu...fékk ekki.
eftir þónokkurn tíma fékk ég þó niðurstöðu í málið...
vinir mínir voru að gera grín í mér, ég hafði verið það ölvaður að ég var fyrirtaks fórnarlamb grikks.
blótaði mér fyrir að vera svona auðtrúa, en fannst grikkurinn fyndinn.

2 Comments:
Ef þetta gerðist í 10. bekk þá hlýt ég að hafa tekið þátt í gríninu. Man hins vegar ekki eftir því en tel mig vita hver það var sem hélt umrætt partý.
Ef þetta gerðist hins vegar í 9. bekk þá hljómar þetta bara mjög svipað og umrætt partý sem mig rámar í.
et tu, kiddi?
Skrifa ummæli
<< Home