ShiskeBobs ShiskeBlogg

17.12.06

maður ársins

ekki bjóst ég við því þegar ég vaknaði í morgun að líf mitt myndi breytast eins mikið og það hefur gert. sá merkilegi atburður átti sér stað nefnilega í morgun að ég var valinn maður ársins hjá hinu virta bandaríska tímariti tímans. ég hef reyndar ekki kynnt mér það en ég þykist nokkuð viss um að þessi heiður hefur aldrei áður fallið í skaut íslendings.
ekki nóg með að ég sé að fá viðurkenningu fyrir það hreinlega að ég sé einstakur meðal manna heldur fær þessi síða líka sitt hrós því það var víst hún, samkvæmt greininni, sem vakti athygli þeirra hjá þessu merka tímariti.
það er því við hæfi að ég þakki þeim sem hafa lagt sitt af mörkum í þessu öllu saman ég biðst afsökunar ef ég gleymi einhverjum.
fyrst ber að nefna mömmu, takk mamma fyrir allt
magga er næst, tók við af mömmu við að klæða og fæða mig
krissi, þessi síða væri ekki til án þín...bókstaflega
starfsfólkið í krónunni uppi á höfða, mettur maður er góður maður
yusuf islam, tónlist þín hefur gert mig að þeim manni sem ég er í dag
þorbergur, þú veist hver þú ert
stebbi í kjós, verð ég aldrei neitt ha! fokking maður ársins auli!

ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, geri ráð fyrir að síminn byrji að hringja um leið og vodafone opnar fyrir hann. eftir að hafa útskýrt hver var á línunni, maður ársins takk fyrir, bað ég þá um að gera undantekningu fyrir mig með þennan reikning sem ég skulda, svona í ljósi aðstæðna, og þeir sögðu "auðvitað félagi, alveg sjálfsagt" svo hefur þeim legið svo mikið á að opna línuna því hann skellti strax á.
ætli það sé dress code á bessastöðum? því ég á ekki bindi...ah þeir hljóta að gera undantekningu...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home