ShiskeBobs ShiskeBlogg

25.10.06

putaland

mér hefur alltaf þótt gríðarlega fyndið hvað það virðist vera ákveðnu fólki mikið kappsmál að sýna, aðallega sjálfu sér, hvað ísland er nú merkileg þjóð.
það fer hinsvegar gríðarlega í taugarnar á mér þegar fólkið sem er að keppast við það er í áhrifastöðum í þjóðfélaginu og er að gera það þannig að allir verði að sjá það. þá vill oft gleymast hagkvæmni.
eitt sem fer hvað mest í taugarnar á mér er þegar verið er að apa eftir stórborgum í evrópu, til dæmis höfuðborgum norðurlanda eða eitthvað álíka, því hvað annað en stórborg, nú eða höfuðborg norðurlands, er reykjavíkin?
frábært dæmi, sem hefur verið að fara gríðarlega í taugarnar á mér upp á síðkastið, eru grænu kallarnir á gangbrautum sumstaðar í reykjavík.
sjáðu nú til, ég fór til svíþjóðar fyrir ekki alls löngu og kynntist þar því að grænu kallarnir á gangbrautum í hinum ýmsu stórborgum, við hin ýmsu stóru gatnamót, fá sinn eigin tíma í ljósaskiptingunum á umferðarljósunum þ.e. á vissum tíma eru einu grænu ljósin á gatnamótunum litlir grænir kallar sem hleypa fólkinu yfir. þetta fór ekki í taugarnar á mér heldur fannst mér þetta sniðugt, hefði hvort sem er verið tilgangslaust að hafa grænt á einhverju ljósi því þeir bílar sem hefðu verið að beygja og fara yfir gangbrautina sem grænt væri á hefðu ekki komist neitt hvort sem er, þvílíkur var straumurinn af fólki.
þessum stórborgarbrag þurfti fráfarandi borgarstjórn að koma að á gatnamótum sem ég þarf mjög oft að keyra og hefur hreinlega gert mig snælduvitlausan. hver vegna? því mér finnst ekkert gaman að sitja á rauðu ljósi og horfa á grænan kall sem er ekki að hleypa neinum yfir. það er kannski tvisvar á dag sem einhver þörf er á þessum gríðarlega fítus og þeim fannst það þess virði að tefja umferð um 10 sekúndur í hvert einasta skipti sem ljósin skipta um lit! þar fyrir utan er umferðarmenningu á íslandi þannig háttað að gangandi vegfarendur eru álíka algengir og jógúrt í ísskápnum hjá manneskju með mjólkuróþol og því nákvæmlega engin þörf á meiri tíma fyrir þá en þeim er gefin nú þegar með þeirri aðferð sem nú er við lýði á langflestum gangbrautum.
fjölmiðlar hérna vilja líka vera eins og fjölmiðlarnir í stóru löndunum og þá oftast finnst mér það hrikalega fyndið, því það er ekkert fyndnara en litlir strákar að reyna að vera eins og stóru strákarnir. eltandi skúbb eins og fávitar...
málið er að við íslendingar eigum okkur bara alls ekki neina menningu í kringum blaðamennsku...sú blaðamennska sem tíðkast hér er eiginlega öpuð upp af þjóðum sem hafa byggt sér upp menningu í kringum hana...og þegar fólk er að reyna að mikla sjálft sig með því að vera að herma eftir öðru fólki hlæja langflestir að þeim.
það þarf ekkert að leita langt til að sjá kómíkina, þessa dagana er önnur hver frétt um hlerana málið stóra, eins og það skipti einhverju andskotans máli...ég meina, hverjum er ekki andskotans sama þótt það hafi verið að hlera einhverja síma á kaldastríðsárum? það bara gerist svo sjaldan eitthvað hérna að þegar eitthvað gerist sem er svona sjaldgæft er það blásið upp eins og frelsarinn sjálfur er að fæðast hérna. ég get allaveganna sagt ykkur það að ef það kæmist upp að borgarstjórnin hefði verið að hlera hjá borgarandstæðingum í 300þ manna bæ hvar sem er í heiminum væri öllum drullusama, nema kannski þeim sem byggju í bænum...en hverju er ekki sama um eitthvað fólk sem býr í einhverju krummaskuði...nú, eða putalandi í miðju atlantshafinu...

1 Comments:

Blogger Kristmundur said...

Hún er orðin vandræðaleg þögnin hérna, Gunni. Ritaðu eitthvað.

8:41 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home