skoðanir og löðrungar
við eigum það öll sameiginlegt að hafa skoðanir á flestu.
ég er þannig. gott ef ég hef ekki skoðanir á öllu...
lang flest okkar, og ég er engin undantekning, eigum að halda skoðunum okkar út af fyrir okkur...en af mismunandi ástæðum samt. sum okkar eiga að gera það vegna hreinnar og klárrar heimsku og/eða brenglaðs siðferðis. í þennan hóp fer fólk sem til dæmis stelur í opinberu starfi sem þeir hafa verið kosnir í og sýna svo enga iðrun, bjóða sig jafnvel aftur fram, og kalla það sem gerðist tæknileg mistök...spurning hvað það var, stuldurinn eða það að vera böstaður.
sum okkar, og þetta er hópurinn sem ég vill setja mig í, eigum að halda skoðunum okkar út af fyrir okkur af því að þær brjóta eina af fyrstu reglum félagsfræðinnar, það er, ekki dæma menningu annarra út frá þinni eigin...eða: ekki dæma aðstæður eða líf annarra út frá þínu eigin. ég á það einmitt til að hafa skoðanir sem eiga annað hvort heima svörtu megin línunnar eða hvítu megin...ekkert fer á línuna samt, hún er hrein. enn einn lösturinn er að það er eflaust auðveldara fyrir fólk að þröngva sér upp á magnús ver en að breyta þeim skoðunum sem ég hef.
og það er af þessum sökum sem ég hvet fólk til að taka ekki mikið mark á því sem ég rita hér þegar ég er að viðra skoðanir mínar og mig hryllir við því ef fólk er að taka lífsspeki mína til sín...þetta er jú allt miðað við mitt líf og mínar aðstæður.
minnir mig á það sem merkt skáld sagði eitt sinn:
gef mér skoðanir þínar og ég skal gefa þér löðrung
okok, það sagði það ekkert skáld, ég var bara að reyna að vera klár, en einhver hefði átt að segja það því það er snjallt.

3 Comments:
Koddu uppá Bifröst og ég skal gefa þér löðrung..og nei, ég borga ekki í göngin.
Bex
Sem nemandi í félagsfræði langar mig að segja þér að þar er mjög lítið um "ekki" . Við hefðum frekar áhuga á því hverjir bæru menningu sína út frá sinni eigin og hverjir gerðu það ekki og af hverju, ef þú skilur hvað ég meina. hvenar fer maður svo að sjá www.myspace.com/gunniDÍS?
ó sorrí ef ég "leikmaðurinn" fór tæknilega rangt með regluna, this is me not caring...
annars gaman að sjá þig maggi, og gunninn mun aldrei láta sjá sig á myspace og dís var léleg bíómynd með álfrúnu í aðalhlutverki
Skrifa ummæli
<< Home