ShiskeBobs ShiskeBlogg

16.11.06

litlir grænir kallar

rétt eftir að hafa lýst því yfir að jafnréttisbaráttan þokast áfram eins og snigill á hlaupabretti, og stendur í stað frá síðustu mælingum á nú heldur betur að taka á þeim málum sem skipta mestu, ef ekki öllu máli.
allt of lengi hafa karlmenn stjórnað hreint út sagt öllu, allt frá landspólitík til gangbrauta en nú á ekki að sætta sig við það lengur heldur ráðast að rót vandans.
nú er nefnilega planið að skipta, allaveganna einhverjum, körlum út fyrir konum í gangbrautarljósunum og með því, ja, allaveganna áorka einhverju býst ég við.
mér finnst að það eigi ekki að draga línurnar þar. vissuð þið til dæmis að 100%, já þið lásuð rétt 100%!, af fígúrunum á karlaklósett hurðunum eru karlar? mér finnst að konur ættu að prýða minnst 50% af þeim, svona til að gæta fulls jafnréttis.
og hvað með dónann, fylliraftinn og rónann sem vísar okkur á gangbrautir víðsvegar um bæinn? á hann ekki líka að fjúka?
þetta kristallar ástæðuna fyrir því að ég þoli oftast ekki "feminista".
ég segi oftast því að ég geri mér grein fyrir að þetta eru öfgaeinstaklingar og allt heilvita og geðheilbrigt fólk sér að hvaða kyn er á gangbrautarfólkinu (sáuð það notað fyrst hér!) skiptir ekki nokkru máli, mætti vera gíraffi fyrir mér. það er alltaf ráðist á rangan enda á málinu, þær fara og eyðileggja b&b á einhverjum fáránlegum grundvelli á meðan útgáfa á blaðinu er fullkomnlega lögleg vegna loðinnar skilgreiningar á klámi í staðinn fyrir að berjast fyrir skýrari skilgreiningu, það er tryggt að súludans er bannaður til að fyrirbyggja mannsal, álíka gáfað og að banna flug til landsins, og vændi þó að vændi sé fullkomnlega löglegt (eða var það á þeim tíma) svo lengi sem það sé ekki aðalstarfið þitt...og ég meina, ef þú ert að vinna sem súlumær segir sig sjálft að vændið er það ekki, og nú á að tryggja konum aukið jafnræði með því að hafa konur og karla jafnfætis á gangbrautarljósum...
feministar semsagt virka á mig eins og fólkið sem tuðar alltaf í fólkinu á kassanum í bónus yfir verðinu í versluninni...
allaveganna finnst mér hart að vera að missa þessa gríðarlega sterku fyrirmynd sem hefur styrkt stöðu okkar karlanna yfir konunum í áraraðir.
nei annars, djóklaust, mér er drullusama, en ef þetta er eitthvað issjú hvernig væri þá bara að verða eins og politically correct druslurnar í bandaríkjunum og hafa bara "labb" og "stopp". afhverju þarf alltaf allt að vera eitthvað vesen, hættið að væla og takið ábyrgð á því sem þið gerið sjálf en ekki leita að afsökunum í umhverfinu.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Skiptir engu máli hvaða fígúra er á gangbrautarljósum? Af hverju ertu þá svona reiður?

Annars væri það jafnrétti ef fólk berðist fyrir hlutlausu og kynlausu merki. 'Misréttið' er jafnmikið hvort sem það er kona eða kall. Fólk er þó bara að vekja til umhugsunar, held ég. Og það tókst greinilega.

Spurning um að neita að fara yfir götu ef af breytingum verður?

12:00 e.h.  
Blogger ShiskeBob said...

vekja til umhugsunar um hvað? ég er orðinn svo þreyttur á að karlmönnum er fundið allt til ama, við gerum allt rangt og það er allt okkur að kenna, allt niður í það að við heimtum að vera á gangbrautarljósum...
annars er mér drullusama um gangbrautarljósin, það er frekar hitt sem kannski pirrar mig svolítið, þetta með að mér finnst sumar af þessum feministum aldrei vera til í að taka ábyrgð á því sem þær gera sjálfar heldur þarf allt að vera okkur að kenna...en auðvitað veit ég að það eru það alls ekki allar, þessvegna segi ég sumar, geri mér grein fyrir að þetta er algjör minnihluti sem er að þessu rugli
og ég er alls ekki reiður, alls ekki, frekar hress bara

1:56 e.h.  
Blogger Kiddi said...

Ég segi bara: Gangið | Stopp

...þá verður kannski sagt: "En hvað með útlendinganna sem skilja ekki íslensku?"
Ætli þetta endi nokkur tíman?

3:08 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hér í Edin eru oft bara grænar örvar, ég skil þær ágætlega...nema þarna einusinni þegar...æi vill ekki segja frá því.

7:05 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home