ShiskeBobs ShiskeBlogg

10.11.06

liðleskja...

formáli:
ástæðan sem mig langaði aldrei að vera með bloggsíðu var aðallega vegna þess að mér fannst alltaf svo sorglegt að sjá endalausa röð af síðum á netinu sem voru með síðustu færslu tveggja mánaða gamla sem samanstóð af "heyhey, langt síðan maður bloggaði síðast en svona er það bara...hef ekkert að segja í bili, sjáumst"
og færslan þar á undan var frá sumrinu áður "jæja, nú á að taka sig á í þessu bloggi maður..." og færslan þar á undan...ja þið skiljið hvað ég á við.
það er bilað búið að vera í skólanum þannig að ég bara hef ekki haft tíma, þannig að til ykkar fimm sem mig grunar að lesið þetta, sorrí en mér er samt eiginlega sama.

inngangur:
mikið hefur verið rætt síðustu ár um ástandið á börnum landsins og vilja margir meina að lítið fari fyrir uppeldi á þeim mörgum. en þó að foreldrar séu ekki mikið til staðar á heimilinu enda ekki öll börn á að vera dónar sem virða ekki nokkurn skapaðan hlut, nei, við skulum líta á aðra afleiðingu þess að myndbandstæki og playstation eru notuð sem ódýr lausn til að losna aðeins frá krílunum.

meginmál:
undirritaður er afurð slíkrar uppeldisaðferðar. ég er samt ekki verri maður fyrir vikið, móður minni tókst að koma sínu siðferði á mig á þeim skamma tíma sem hún hafði, því ekki hafði hún neitt annað val en að vinna. en það er eitt sem ég velti fyrir mér að sé afleiðing þess að hafa húkkað inni flestar stundir og glápt á vídjó og spilað tölvuleiki.
ég meika ekki útivist...varla af neinu tagi.
útilegur? nei takk. skíði? glætan. fjallaklifur? gaman að segja að manni langar en sannleikurinn er sá að fyrr þigg ég munnmök frá leoncie en að ég klífi fjall.
ég var að tala við einn í bekknum mínum og var að viðurkenna með skömm afstöðu mína til útivistar, umræddur maður er frá ísafirði, þrekinn fullorðinn maður sem var á sjó í mörg ár. umræðan byrjaði á því að ég viðurkenndi að ég hef aldrei farið á sveitaball á ævinni. það þótti honum ótrúlegt. á endanum sest hann í sætið og án þess að horfa á mig segir hann eitthvað sem ég rétt heyrði
"ha?" sagði ég, "hvað sagðiru?"
"þetta er nákvæmlega ástæðan sem ég vill búa sem styðst í bænum" muldraði hann.
hann var samt ekki að segja þetta við mig.
"vegna þess ég vill ekki að börnin mín verði..."
- "eins og ég?" sagði ég, "nei, ég skil það, ég vill heldur ekki að börnin mín verði eins og ég"

lokaorð:
og þetta er í hnotskurn afhverju ég er búinn að passa mig nokkuð vel að barna ekki einhverja stúlkukindina...þegar ég eignast barn þá vill ég helst geta komið, ekki bara mínu yfirburðar siðferði, heldur líka fjölskyldugildum og mikilvægi þess að gera eitthvað annað en að glápa á sjónvarpið eða liggja í tölvunni allan daginn. verst að ég er ekkert bjartsýnn á að ég verði eitthvað annað en óþolandi hræsnari í augum barna minna þusandi um að þau eigi ekki að hanga svona inni allan daginn því ég geri lítið annað í frítíma mínum en að hanga í sófanum eða í tölvunni...
en ég er þó langt frá því að kenna mömmu minni, og uppeldi hennar, um það sem er væntanlega ekki mikið meira en leti af minni hálfu.

gunnar sveinsson

eftirmáli:
þessi póstur er á engan hátt einhversskonar skot á einstæðar mæður, þær vinna eitt erfiðasta starf í heimi og ég get ekki borið meiri virðingu en ég nú þegar geri fyrir þeim sem hlaupa undir þegar við strákarnir tökum ekki ábyrgð á því sem við gerum, og ætla ég alls ekki að þykjast vita neitt um það að ala upp börn, barnlaus maðurinn sem þarf ekki að hugsa um neitt annað en rassgatið á sjálfum sér. þetta var bara hugleiðingar um það afhverju ég er svona mikill innipúki.

heimildarskrá:
gunnar sveinsson. 2006. svarthvíta svæðið: skoðanir. mál og menning, hafnarfirði.

5 Comments:

Blogger Kiddi said...

Ég gef mig fram við að lesa þessa bloggsíðu, hverjir ætli séu hinir fjórir?
Góð ritgerð, vantaði kannski helst forsíðu.

9:08 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Veit ekki. Ég hef alltaf ímyndað mér að mín börn yrðu nákvæmlega eins og þú.

Annars viðurkenni ég ekki að lesa þessa síðu. Hendi bara inn kommentum þegar mér leiðist.

12:06 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég les hana ,en bara út af vorkunn;)

7:41 e.h.  
Blogger Kiddi said...

muhahahahaha

9:46 e.h.  
Blogger ShiskeBob said...

hey, ég dreg enga línu við pity sex, afhverju ætti ég að gera það með lestur á bloggi?

11:20 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home