ShiskeBobs ShiskeBlogg

13.12.06

jólaandinn

"voðalega hallar tréð"
"já...spurning hvort þeir viti af því"
"örugglega erfitt að hafa það beint, það er víst samansett úr þremur eða fjórum trjám"
"ég heyrði að þeir voru að reyna að skáka trénu á austurvelli"
"hinn sanni jólaandi bara..." muldraði ég svo enginn heyrði
þetta voru samræður sem áttu sér stað við borð sem ég sat við í orkuveituhúsinu, fólkið sem sat við borðið var að tala um risastórt jólatré sem nokkrir vinnumenn voru að brasa við að koma í gagnið, því allir vita að jólatré virka ekki fyrr en ljósleiðaraseríurnar eru komnar í gang.

ég hef aldrei verið sérstaklega mikið jólbarn í mér. jú auðvitað var maður sjúkur í þetta allt saman þegar maður var barn, en þegar krúttfactorinn minnkaði og ættingjar hættu sjá tilefni til að gleðja drengsa með gjöfum á aðfangadag sá ég hreinlega engan tilgang með jólunum. ekki á ég börn. það eina sem ég sá var efnishyggjan...og ég hef aldrei verið neinn sérstakur aðdáandi hennar. á endanum var það orðið svo að mér var hreinlega orðið illa við jólin og varði þetta í allnokkur ár.
það er ekki fyrr en núna síðustu þrjú ár eða svo sem ég hef tekið jólin í sátt. en það var eiginlega bara vegna þess að ég byrjaði að afþakka jólagjafir með öllu. vill helst ekki fá gjafir frá neinum. ég ákvað að taka þann pól í þetta að sjá til þess að ekkert stress yrði orsakað af því að finna gjöf handa mér. leið strax betur.
þannig að síðustu jól hef ég getað einbeitt mér að því að gefa, ætla að ná tökum á því hugtaki áður en ég reyni við hitt...að þiggja.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home