byrgið byrgir birgi sýn
ég ætla að láta eftir í baráttunni við að standast það að skrifa um þennan blessaða kompás þátt sem allir eru að skrifa\tala um.
ég sá umræddan þátt og mér blöskraði. mér blöskraði það sem að maðurinn sem þátturinn fjallaði um átti að hafa gert, ef rétt þá er siðleysið algjört...hjá manni krists hvorki meira né minna.
þar einmitt liggur annað sem mér blöskraði meira yfir, -ef rétt- parturinn. viljum við í alvörunni að fjölmiðlar fari að taka sér starf dómara, kviðdómanda og böðuls í þjóðfélaginu? ef menn, fjölmiðlar eða einstaklingar, komast yfir sönnunargögn í sakamálum sem eru refsiverð eiga þeir þá að eltast við að fullnægja réttlætinu sjálfir og taka það í sínar hendur að færa fjöldanum viðkomandi til refsingar?
staðreyndin er sú að við sem samfélag höfum þróast frá þeirri hugsun og erum betri fyrir vikið, kompás og þeirra fólk eiga betur heima á miðöldum með sinn hugsunarhátt.
og það sem mér finnst verst er að eina ástæðan fyrir því að kompásfólkið fór ekki með þessar "sannanir" til lögreglunnar svo að kerfið gæti haft sinn gang er vegna þess að þeim langaði til að vera eins og flottu krakkarnir í bandaríkjunum og fá að vera með skúbb, sem er ógeðfellt, litlir hálvitar í hermileik.
réttarkerfið hérna í landinu gengur út á það að menn eru saklausir uns sekt þeirra er sönnuð, sem getur verið erfitt að sætta sig við þegar fólk þykist vita að menn séu sekir.
þessi háttur er ekki hafður á til að halda eins mörgum sekum mönnum á götunni og mögulegt er án þess að hneyksla þjóðfélagið, þessi háttur er hafður á til að halda eins mörgum saklausum frá því að lenda í fangelsi.
við verðum að horfast í augu við það að réttarkerfið varð ekki til þess að refsa hinum seku, það þarf ekki að lesa mikið í sögu til að sjá að mannskepnan hefur aldrei átt í erfiðleikum með það, heldur til að koma í veg fyrir að verið var að refsa hinum saklausu...og menn verða að vera saklausir, sama hversu sekir þeir virðast uns sekt þeirra er sönnuð eða sannanleg til að kerfið virki...fyrir okkur öll.
ég verð að taka það fram að ég þekki þennan mann ekki neitt, hef aldrei hitt hann svo ég viti.
ég er alls ekki að mynda mér skoðun á því hvort hann gerði það sem sagt var eða ekki, það skiptir mig engu máli því að það er ekki mitt hlutverk í samfélaginu að gera eitthvað í því, við erum ekki æstur múgur og við eigum ekki að vera það. ef fólk vill getað refsað fólki úti á götu getur það flutt til landa þar sem það er ásættanleg hegðun í þjóðfélaginu, en ég vara fólk við, það eru miður skemmtileg lönd sem um ræðir. viljum við tilheyra þeim?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home