gleðileg jól á havæísku
ekki margir kunna svona útlensku en titillinn á færslunni þýðir einfaldlega "gleðileg jól" á havæísku.
einhverntímann þegar ég var krakki datt ég niður á þá hugmynd að til þess að aðfangadagur liði nú hraðar en stephen hawkins án hjólastólsins ætlaði ég að losa mig við spenninginn tengdu pakkaopni og sofa af mér aðfangadag.
mig minnir að ég hafi reynt þetta jólin sem mér datt þetta í hug en sofnað við það að reyna að halda mér vakandi. vaknaði við það að planið klikkaði...eða klikkaði planið þegar ég vaknaði? spurning...
annars er ég ekki haldinn þessum pakkaspenningi í dag, í dag hlakkar mig bara til að borða góðan mat með fjölskyldunni og sé eiginlega eftir því að það tók mig bróðurpartinn af ævinni sem liðin er að fatta það, vonandi á ég nóg eftir til að gera það tímabil að einungis litlu broti...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home