ShiskeBobs ShiskeBlogg

16.3.07

slef, slen, hor og annar óbjóður

þoli ekki að verða veikur og vill meina að af þeirri ástæðu einni saman verð ég það ferlega sjaldan.
slapp samt ekki við það í þessari viku, ónei.
fyrst varð ég veikur af því að lesa um enn einn pjúrítanann sem þurfti að að kalla litla 14 ára stelpu hóru og skækju í opnum fjölmiðli á netinu, væntanlega gert til að ríða feitri öldu klámumræðunnar sem átti að skapa vinsældir en kom svo í ljós að flestir höfðu bara ekkert á móti því...allaveganna enginn með viti.
svo í dag varð ég verulega veikur þegar ég varð vitni að einni mestu heimsku sem ég hef þurft að horfa uppá í langan tíma.
einhver á ísafirði í alvörunni hringdi og kvartaði yfir auglýsingarborða frá coke zero þar sem stóð eitthvað á þessa leið "afhverju ekki kynlíf með zero forleik"...ástæðan? ótti við að þetta myndi vekja upp ofbeldi í ungum drengjum...djóklaust, var í fréttum á vísi.is.
ok, mér persónulega finnst þetta soldið fullorðins og á ekki alveg heima á hvaða götuhorni sem er en aldrei myndi ég nenna að hringja og kvarta yfir því. og ef að ég myndi gera það hefði ég nú manndóm í mér að segja sönnu ástæðuna (að ég væri ósyndugur pjúrítani) en ekki eitthvað svona þrugl.

og já, svo varð ég í alvörunni veikur með öllu tilheyrandi en það fór ekkert svo í taugarar á mér enda leið það hjá.

5.3.07

enn um samviskusemi...

mér tókst það aftur.
maður finnur ekki fyrir því þegar maður er samviskusamur frá öðrum nema þá að maður tekur stundum eftir skrítnum svipum sem er skotið á mann þegar fólk skilur ekkert í manni...ég fæ oft svona svipi...
ekki það að ég er að reyna að vera eitthvað góður sérstaklega, ég bara hef mínar sannfæringar og geri mitt allra besta til að lifa eftir þeim.

ein af þeim er að ég kæri mig ekki mikið um hluti sem ég á ekki skilið.
lenti í því um daginn að ég fékk til baka próf úr stærðfræði sem ég hafði tekið vikuna áður...sat vel og lengi og starði á blaðið...var samt ekki að horfa á einkunnina mína, sem var níu, heldur aðallega á mistök hjá kennaranum í yfirförinni...hann hafði lagt á mig nánast einn heilann fyrir mistök.
ég horfði lengi á blaðið og hugsaði með mér að enginn þyrfti að vita neitt...taktu bara einkunnina og þegiðu.
svo var ég spurður hvað ég fékk á prófinu
ég fraus...hvað fékk ég? góð spurning...
ég sagði ekki neitt heldur gekk að borðinu og afsakaði mig.
sagði að hann hefði gert mistök við yfirferðina á prófinu.
benti honum á villuna...hann horfði á mig og svo á prófið.
jújú...þarna blasti hún við, hann tók upp penna og strokaði yfir níuna mína og setti átta í staðinn.
bekkurinn, sem hingað til hafði tekið eftir mér fara upp að borðinu með prófið en ekki mikið verið að fylgjast með, horfði á mig. þau vissu hvað þau höfðu séð rétt í þessu en voru ekki alveg að fatta það...
loks kom einhver með niðurstöðu í málið
"varstu að láta lækka þig!?"
eina sem ég gat sagt var, já, ég kæri mig ekki um einkunn sem ég á ekki skilið og þaut skömmustulegur aftur í sætið mitt

ég ætla samt að enda þetta á að segja að ég fékk á endanum níuna mína aftur því að kennarinn hafði gert önnur mistök sem hækkuðu mig aftur upp